Frammistöðustjórnun sem skilar árangri
Við hjá AVISION greinum reksturinn í nánu samstarfi við stjórnendur. Við finnum lykiltækifærin og mótum skýra stefnu með mælanlegum markmiðum.
Er reksturinn að skila því sem gert er ráð fyrir?
Með AVISION færðu samstarfsaðila sem hjálpar þér að skýra stefnuna og ná raunverulegum, mælanlegum árangri.
Markmið mitt er að miðla af þekkingu minni og skapa aukið virði fyrir fyrirtæki sem:
Hverjum ég hjálpa best
- Þurfa fjármálastjóra að láni
- Þurfa að setja upp eða efla hagdeild, kostnaðareftirlit og viðskiptagreind sem styður við betri ákvarðanatöku
- Eru að undirbúa sölu og vilja hámarka virði fyrirtækisins
- Vantar stjórnarmann með víðtæka rekstrar- og fjármálareynslu
Ef þú þekkir þetta
- Hefur ekki skýra mynd af afkomu eftir sviðum eða vörum
- Stjórnar meira eftir tilfinningu en gögnum
- Veist að „þetta mætti allt vera miklu betra“
Þá er mjög líklega rétti tíminn til að tala saman.
Bóka fund →Við aðstoðum við innleiðingu stefnu með viðurkenndum aðferðum, með það að markmiði að bæta reksturinn og auka virði fyrirtækisins.
Bókaðu fundartíma í hnappnum hér á síðunni og skoðum hvernig ég get hjálpað þínu fyrirtæki að ná betri árangri.
„Ef þú getur ekki mælt það, geturðu ekki stýrt því. Og ef þú getur ekki stýrt því, geturðu ekki bætt það."— Þetta er grunnurinn að frammistöðustjórnun
Hvað er frammistöðustjórnun?
Hefðbundin skipan er að fjármálastjóri sjái um tölurnar, rekstrarstjóri um daglegan rekstur og sölustjóri um tekjurnar. En hver sér heildarmyndina?
Frammistöðustjórnun tengir þetta saman. Ég kem inn sem utanaðkomandi aðili með 360° sýn, greini hvar kerfin bila og hvar tækifærin liggja. Í kjölfarið byggi ég upp mælaborð og ferla sem gera þér kleift að taka betri ákvarðanir hraðar.
Þetta er ekki ráðgjöf sem endar í skúffu. Þetta eru raunveruleg kerfi sem ég set upp, kenni teyminu að nota, og skila svo af mér þegar þau keyra sjálf.
Eitt hlutverk - öll svið tengd
Fjármál
Kostnaðargreining, fjárhagsáætlanir, sjóðstreymi
Rekstur
Skilvirkni, ferlar, nýting auðlinda
Sala og vöxtur
Tekjugreining, arðsemi, viðskiptaþróun
Gögn og greining
Mælaborð, frammistöðumælikvarðar, vöktun
AVISION-leiðin
Framtíðarsýn
Skýr framtíðarsýn og raunhæf áætlun áður en lagt er af stað. Ég hjálpa þér að skilgreina markmiðin og leiðina þangað.
Brúa bilið
Stefna tengir stöðuna í dag við það sem þú vilt ná út úr rekstrinum. Ég byggi brúna með þér.
10x Virðisaukning
Við bætum nýtingu, lækkum kostnað eða aukum tekjur. Alltaf með mælanlegum áhrifum á afkomu.
Kjarnaþjónusta
Sérsniðnar lausnir að þínum rekstri.
Frammistöðustjórnun
Ég kem inn sem utanaðkomandi frammistöðustjóri, 2–4 daga í mánuði. Ég greini stöðuna, byggi upp innviði og þjálfa starfsfólk, þar til ferlarnir virka sjálfkrafa.
- Skilgreining frammistöðumælikvarða (KPIs)
- Mælaborð og skýrslugerð
- Kostnaðar- og arðsemisgreining
- Ferlagreining og hagræðing
- Þjálfun innra teymis
Fjármálastjóri að láni
Fyrir fyrirtæki sem þurfa fjármálastjóra að láni til að skapa skýra yfirsýn, bæta arðsemi og styðja ákvarðanir.
- Sjóðstreymi, áætlanir og arðsemisgreining
- Stjórnendaskýrslur og KPI-yfirsýn
- Kostnaðargreining og verðlagning
- Undirbúningur fyrir fjármögnun eða sölu
- Ákvarðanastuðningur fyrir stjórnendur
Viðskiptagreind
Ég set upp mælaborð og greiningarkerfi sem gefa þér rauntíma yfirsýn, meðal annars með Power BI.
- Sérsniðin mælaborð
- Sjálfvirk skýrslugerð
- Gagnasamþætting úr mismunandi kerfum
- Frávikagreining og sjálfvirkar viðvaranir
- ABC greining og forgangsröðun
Um mig
Ég bý yfir 20 ára reynslu í flugi, fjármálum og stefnumótun. Ég starfa sem lausnamiðaður samstarfsaðili og hjálpa stjórnendum að mæla það sem skiptir máli, marka skýra stefnu og ná varanlegum árangri.
Stefnumörkun til framkvæmdar
Ég hef byggt upp innviði hjá þremur flugfélögum og komið að stofnun fyrirtækis sem skráð var á markað. Sem meðstofnandi PLAY byggði ég félagið upp frá grunni: fjármál, rekstur og gagnainnviði. Ég leiddi þá vinnu sem gerði félagið hæft til skráningar á Nasdaq. Það er reynsla sem ég tek með mér í hvert verkefni.
Reynslan mín spannar æðstu stjórnunarstöður hjá þremur flugfélögum, 12 ár hjá Air Atlanta Icelandic, 3+ ár hjá WOW air og síðast sem meðstofnandi PLAY.
Sem fyrrverandi meðlimur í stýrinefnd IATA um kostnaðarstjórnun og samanburðargreiningu flugfélaga, færi ég alþjóðlega bestu starfshætti í hvert verkefni, sérsniðið að þínum þörfum.
- Meðstofnandi PLAY: Byggði upp alla fjármála- og rekstrarinnviði frá stofnun til skráningar á Nasdaq
- IATA stýrinefnd: Fyrrverandi meðlimur, kostnaðarstjórnun og samanburðargreining flugfélaga
- Air Atlanta Icelandic: 12 ára reynsla sem forstöðumaður hagdeildar í alþjóðlegum flugrekstri þar sem hver króna skiptir máli
- WOW air: 3+ ár uppbygging gagna- og hagdeildarinnviða í hraðvaxandi flugfélagi
Hafa samband
Tilbúinn að innleiða lausnir sem skila mælanlegum árangri? Ræðum málin.
Tengiliðaupplýsingar
Staðsetning
Turninn, Smáratorgi 3, 201 Kópavogur
Netfang
info@avision.isSími og WhatsApp
+354 891 9188Hvernig get ég hjálpað?
Hvort sem þú þarft frammistöðustjóra, fjármálastjóra að láni eða viðskiptagreind, þá finnum við lausn sem hentar þínum rekstri.