Til baka á forsíðu

Flugrekstur

Sérþekking á rekstri og fjármálum flugfélaga.

AVISION veitir flugfélögum og tengdum rekstri fjármála- og rekstrarráðgjöf sem tengir daglegar ákvarðanir við afkomu. Við greinum arðsemi flugleiða, kostnað og nýtingu, styrkjum fjármála- og gagnainnviði og vinnum með stjórnendum að því að koma umbótum í framkvæmd.

Bóka samtal
Farþegaflugvél á flughlæði

Reynsla úr flugrekstri

Sérþekking AVISION byggir á yfir 20 ára reynslu stofnandans, Sveins Inga Steinþórssonar, af fjármálum, flugrekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Reynslan nær frá daglegri greiningu og hagdeildarvinnu til uppbyggingar innviða flugfélags frá stofnun til skráningar á Nasdaq.

  • PLAY – meðstofnandi. Byggði upp fjármála-, rekstrar- og gagnainnviði frá stofnun til skráningar á Nasdaq.
  • Air Atlanta Icelandic – 12 ár, þar af 10 sem forstöðumaður hagdeildar
  • WOW air – rúm þrjú ár við uppbyggingu gagna- og hagdeildarinnviða í örum vexti.
  • IATA – fyrrverandi meðlimur í stýrinefnd um kostnaðarstjórnun og samanburðargreiningu flugfélaga.
Um stofnanda AVISION

Hvenær nýtist AVISION?

Þegar óljóst er hvaða flugleiðir skila arðsemi, kostnaður eykst án augljósrar ástæðu eða nýting flugvéla og áhafna skilar sér ekki í afkomu. Einnig þegar samræma þarf upplýsingar úr ólíkum kerfum, efla hagdeild eða styðja stjórnendur við vöxt og breytingar.

Arðsemi flugleiða og einingahagkvæmni

Við greinum tekjur, kostnað og framlegð eftir flugi, flugleið og markaði, með skýrum forsendum um kostnaðarúthlutun. Samanburður á einingakostnaði og einingatekjum, meðal annars CASK og RASK þar sem við á, styður áætlanagerð og ákvarðanir um leiðir, tíðni og afkastagetu.

Leiðakerfi og framlag til heildarafkomu

Við metum framlag flugleiða til heildarafkomu, árstíðasveiflur og áhrif flugvélagerða á arðsemi. Greiningin tengir saman eftirspurn, afkastagetu og fjárhagslegar forsendur svo stjórnendur geti borið saman valkosti fyrir leiðakerfið.

Nýting flugvéla, áhafna og aðfanga

Við tengjum nýtingu flugvéla og áhafna við kostnað, framlegð og framleiðni eftir flota, starfsstöð og tímabili. Við greinum hvar rekstrarlegar og fjárhagslegar forsendur fara ekki saman og hvaða aðgerðir geta bætt nýtingu og afkomu.

Rekstrartruflanir og kostnaður

Við greinum fjárhagsleg áhrif seinkana, aflýsinga og aðgerða til að koma rekstri aftur í horf. Rekstrargögn eru tengd við kostnað og tapaðar tekjur til að sjá hvar áhrifin verða og bera saman umbótakosti. Afhending getur verið kostnaðarlíkan, greining á orsökum og forgangsröðuð aðgerðaáætlun.

Fjárhagsáætlanir og fjármálainnviðir

Við setjum upp eða eflum hagdeild, áætlanagerð og stjórnendaupplýsingar. Verkefni geta náð til bókhaldslykla og kostnaðarflokkunar, sjóðstreymisspáa, fjárhagsáætlana, frávikagreiningar og stjórnarskýrslna. Sviðsmyndir og regluleg árangursrýni tengja forsendur um reksturinn við fjárhagslegar niðurstöður.

Gagnainnviðir og breytingar

Við tengjum fjármála-, sölu- og rekstrargögn við þarfir stjórnenda, samræmum skilgreiningar og byggjum upp rekjanlegar stjórnendaupplýsingar. Aðkoman getur falist í kerfisbreytingum, gagnasamþættingu, mælaborðum, ferlaumbótum og þjálfun. Innleiðing og eftirfylgni styðja við að lausnirnar nýtist í daglegum rekstri.

Afmarkað verkefni: arðsemi flugleiða

Við samræmum tekjur, kostnað og rekstrarforsendur fyrir valdar flugleiðir og afhendum líkan, skýringar á frávikum og tillögur að aðgerðum. Umfang, kostnaðarúthlutun og samanburðartímabil eru ákveðin áður en greining hefst. Verkefnið getur staðið eitt og sér eða orðið grunnur að reglulegri árangursrýni með stjórnendum.

AVISION Intelligence

Þróun og framtíðarsýn

Þetta eru þróunarsvið innan AVISION Intelligence. Afmörkuð greiningar- og innleiðingarverkefni eru skilgreind sérstaklega. Hér er ekki verið að bjóða fullbúið staðlað hugbúnaðarkerfi.

Sala, sölurásir og aukatekjur

Þróunarsýnin nær til bókunarþróunar, sætanýtingar, meðaltekna, aukatekna og arðsemi sölurása. Þar á meðal eru bókunarkostnaður eftir sölurás og áhrif verð- og vörubreytinga. Markmiðið er að tengja sölu- og rekstrargögn við fjárhagslega afkomu. Gagnatengingar og einstök notkunartilvik eru skilgreind sérstaklega.

Áhafnir, eldsneyti og viðhald

Meðal þróunarviðfangsefna eru kostnaðarmat áður en vaktaplan er birt, nýting áhafna og stöðugleiki vakta, stundvísi og áreiðanleiki áætlunar, eldsneytisnýting og viðhaldskostnaður. Greiningar geta náð til kostnaðar eftir áhafnarverkefnum og áreiðanleika íhluta. Gagnatengingar og nothæfi hverrar greiningar eru metin með viðkomandi flugfélagi.

Markmið og afhending

Markmiðið er að stjórnendur sjái hvaða ákvarðanir geta bætt afkomu og geti fylgt árangrinum eftir. Afhending getur verið arðsemis- eða kostnaðarlíkan, samræmdir mælikvarðar, stjórnendaskýrslur, aðgerðaáætlun og stuðningur við framkvæmd. Við skilgreinum gögn, umfang, ábyrgð og mælikvarða í upphafi. Aðkoman getur verið afmarkað verkefni, regluleg ráðgjöf eða nánara samstarf við teymið.

Spurningar og svör

Flugrekstur

Hvaða viðfangsefni í flugrekstri tekur AVISION að sér?

Meðal viðfangsefna eru arðsemi flugleiða, kostnaðar- og tekjugreining, nýting flugvéla og áhafna, áhrif rekstrartruflana, fjárhagsáætlanir og gagnainnviðir. Við tengjum rekstrarákvarðanir við fjárhagslega afkomu.

Skoðið þið áhrif seinkana og annarra rekstrartruflana?

Já. Við greinum kostnað og rekstrarleg áhrif truflana í samhengi við gögn og ákvarðanir flugfélagsins. Greiningin á að styðja forgangsröðun úrbóta og skýrari sýn á það hvar kostnaðurinn verður til.

Hvernig tengið þið nýtingu og arðsemi?

Við skoðum nýtingu flugvéla, áhafna og annarra aðfanga samhliða kostnaði, tekjum og rekstrarforsendum. Skilgreiningar og samanburður þurfa að hæfa viðkomandi rekstri. Einn mælikvarði lýsir ekki heildarmyndinni.

Hvaða gögn þarf fyrir flugverkefni?

Það ræðst af spurningunni. Við getum meðal annars þurft fjárhagsgögn, flugáætlun, rekstrarskráningar og upplýsingar um tekjur og aðfanganýtingu. Gagnasvið, skilgreiningar og aðgangur eru ákveðin áður en greining hefst.

Næsta skref er samtal

Hvernig getum við aðstoðað þig?

Segðu okkur frá stöðunni og hvert þú vilt stefna. Við finnum leiðina saman.