Til baka á forsíðu

AVISION PAY

Synjuð greiðsla segir ekki alla söguna.

AVISION PAY veitir óháða greiðsluráðgjöf með sérþekkingu á flugfélögum og ferðaþjónustu. Við greinum hvar viðskipti tapast í greiðsluferlinu, hvað hver greiðsla kostar og hvernig uppgjör skilar sér í sjóðstreymi. Þú færð skýra mynd af umbótatækifærum og forgangsraðaða aðgerðaáætlun.

Bóka samtal
Ómerkt greiðslukort við posa

Greiðsluferlið í heild

  1. Upphaf greiðslu

    Við kortleggjum upphaf greiðslu eftir markaði, tæki og greiðslumáta. Það er grunnurinn að því að mæla brottfall í næstu skrefum.

  2. Auðkenning með 3DS

    Við greinum hvort viðskiptavinur lýkur auðkenningu og hvar brottfall verður. Auðkenning og samþykki heimildarbeiðna eru skoðuð hvort í sínu lagi.

  3. Heimildarferlið

    Við greinum samþykki og synjanir eftir færsluhirði, kortakerfi, kortaútgefanda og markaði og tengjum þær við niðurstöður fyrri skrefa.

  4. Uppgjör og sjóðstreymi

    Við rekjum uppgjör, gjaldmiðla, endurgreiðslur og afstemmingu til bankans og bókhaldsins. Þannig tengist greiðsluferlið því fé sem skilar sér í reksturinn.

Hvenær nýtist AVISION PAY?

Þegar heildarsamþykkishlutfall segir ekki hvar viðskipti tapast, greiðslugjöld eru óljós eða uppgjör og afstemmingar taka of mikinn tíma. Einnig þegar velja þarf færsluhirði, endursemja um kjör eða bæta greiðsluleiðir á nýjum mörkuðum.

Samþykki greiðslna og 3DS

Við aðgreinum auðkenningu, heimildarbeiðnir og brottfall í greiðsluferlinu. Við greinum synjunarástæður eftir þjónustuaðila, markaði og greiðslumáta og metum endurteknar heimildarbeiðnir við tímabundnar synjanir, ásamt stýringu og varaleiðum. Markmiðið er að finna hvar viðskipti tapast og hvaða breytingar er rétt að prófa.

Færsluhirðing og samningar

Við aðstoðum við val á færsluhirðum og greiðsluþjónustuveitendum, berum saman samningskjör og styðjum samningaviðræður. Kostnaður, þjónustustig, markaðsþekja og árangur greiðslna eru metin saman. Tillögur byggja á gögnum og þörfum rekstrarins. Regluleg eftirfylgni sýnir hvort kjör og þjónusta standast væntingar.

Greiðsluarkitektúr og stýring

Við metum greiðsluleiðir, þjónustuaðila og stýringu milli færsluhirða, ásamt varaleiðum þegar ein leið bregst. Við skoðum hvernig draga megi úr meðhöndlun kortagagna og umfangi PCI DSS með arkitektúrnum. Aðkoman nær til ráðgjafar. Formleg PCI DSS-úttekt og vottun eru á hendi til þess bærra sérfræðinga.

Heildarkostnaður við greiðslur

Við sundurliðum milligjöld, kortakerfisgjöld, álagningu færsluhirða, föst gjöld, gjaldeyriskostnað og kostnað vegna endurgreiðslna og bakfærslna. Kostnaðarlíkan sýnir kostnað á hverja greiðslu sem tekst eftir greiðslumáta og markaði, svo hægt sé að bera saman raunveruleg kjör og umbótakosti.

Staðbundnir greiðslumátar

Við metum hvaða greiðslumátar henta viðskiptavinum og mörkuðum fyrirtækisins, forgangsröðum tengingum og skilgreinum hvernig mæla eigi áhrifin. Kostnaður, heppnaðar greiðslur og rekstrarlegt umfang eru skoðuð saman áður en nýrri greiðsluleið er bætt við.

Uppgjör, áhætta og rekstraryfirsýn

Við tengjum gögn frá greiðsluþjónustuaðilum og færsluhirðum við bankauppgjör og bókhald. Tafir, misræmi, endurgreiðslur og bakfærslur eru greind í samhengi við sjóðstreymi. Yfirferðin getur einnig náð til tvítekinna endurgreiðslna og órekjanlegra bakfærslna, með skýrum ferlum fyrir afstemmingu og úrlausn frávika.

Svikavarnir, bakfærslur og ágreiningur

Við greinum svikamynstur, bakfærsluástæður og árangur við úrlausn ágreinings. Yfirferð á reglum, gæðum fylgigagna og viðbragðsferlum hjálpar til við að meta jafnvægið milli svikavarna og réttmætra greiðslna. Tillögur geta náð til færri rangra synjana, betri fylgigagna og skýrari ábyrgðar í úrlausnarferlinu.

Greiðsluupplifun og þjónustuálag

Við skoðum brottfall í greiðsluferli, bið eftir endurgreiðslum og greiðslutengdar þjónustubeiðnir. Greiningin tengir tæknilegar hindranir og þjónustuferla við upplifun viðskiptavina, kostnað og tapaðar tekjur. Hún hjálpar til við að forgangsraða breytingum sem styðja bæði greiðslur og þjónustu.

Greining og regluleg árangursrýni

Við skilgreinum mælikvarða fyrir hvert skref greiðsluferlisins og tengjum þá við tekjur, kostnað og sjóðstreymi. Mælaborð, dagleg greining og regluleg rýni eru mótuð út frá þörfum fyrirtækisins. Skýrar skilgreiningar, ábyrgð og þjálfun gera teyminu kleift að nýta niðurstöðurnar og fylgja aðgerðum eftir.

Afmarkað verkefni: greiðslukostnaður og samningar

Við förum yfir samninga og færslugögn, sundurliðum gjöld og tengjum kostnað við heppnaðar greiðslur. Afhending getur verið kostnaðarlíkan, samanburður samningskjara og forgangsröðuð samnings- og umbótaatriði. Vinnan getur staðið ein og sér eða tengst heildarúttekt á greiðsluferlinu.

Reynsla sem tengir greiðslur við rekstur

AVISION tengir reynslu af uppbyggingu og umbótum greiðslulausna við fjármálaþekkingu, rekstur og gagnagreiningu. Stofnandinn, Sveinn Ingi Steinþórsson, hefur yfir 20 ára reynslu af fjármálum og flugrekstri, er meðstofnandi PLAY og hefur starfað hjá Air Atlanta Icelandic og WOW air. Sú reynsla styður heildarsýn á greiðslur, afkomu og framkvæmd breytinga.

Markmið og afhending

Heildarúttekt getur skilað yfirliti lykilmælikvarða og þróun þeirra, kortlagningu tapaðra viðskipta og kostnaðar, kostnaðarlíkani og forgangsraðaðri aðgerðaáætlun. Einnig er hægt að fá stjórnendasamantekt, skilgreiningar mælikvarða og áætlun um innleiðingu og eftirfylgni. Umfang, gögn og ábyrgð eru ákveðin í upphafi. AVISION veitir óháða ráðgjöf og greiningu, en er ekki færsluhirðir eða greiðsluþjónustuveitandi.

Spurningar og svör

AVISION PAY

Af hverju þarf að skoða meira en hlutfall samþykktra kortagreiðslna?

Viðskipti geta tapast áður en heimildarbeiðni er send. Við aðgreinum upphaf greiðslu, auðkenningu með 3DS, heimildarferlið og uppgjör. Þannig má greina hvar viðskipti tapast í stað þess að skoða aðeins eitt heildarhlutfall.

Getið þið greint kostnað við færsluhirðingu og greiðslumiðlun?

Já. Við skoðum meðal annars samninga, álagningu þjónustuaðila, kortakerfisgjöld, milligjöld, gjaldeyriskostnað og endurgreiðslur. Markmiðið er skýr mynd af heildarkostnaði við vel heppnaða greiðslu.

Eruð þið sjálf færsluhirðir eða greiðsluþjónustuveitandi?

Nei. AVISION veitir óháða ráðgjöf og greiningu. Við getum aðstoðað við mat á þjónustuaðilum, samningum og greiðsluarkitektúr, en tökum ekki við greiðslum fyrir hönd viðskiptavina.

Nær greiningin líka til uppgjörs og afstemminga?

Já. Við skoðum leiðina frá greiðslu til uppgjörs, bankareiknings og bókhalds. Þar getur meðal annars verið um að ræða tafir á uppgjöri, gjaldeyrismun, endurgreiðslur og mismun milli kerfa.

Hvað fæ ég út úr greiðsluúttekt?

Afhendingin er ákveðin með þér. Hún getur meðal annars falið í sér skilgreinda lykilmælikvarða, kortlagningu tapaðra viðskipta og kostnaðar, kostnaðarlíkan og forgangsraðaða aðgerðaáætlun. Áætlaður ávinningur byggir á gögnum, ekki almennum loforðum.

Næsta skref er samtal

Hvernig getum við aðstoðað þig?

Segðu okkur frá stöðunni og hvert þú vilt stefna. Við finnum leiðina saman.