Til baka á forsíðu

Rekstrarárangur

Frammistöðustjórnun sem skilar árangri.

AVISION hjálpar eigendum, stjórnum og stjórnendum að sjá hvað skilar arðsemi, hvar umbóta er þörf og hvernig á að fylgja þeim eftir. Við tengjum fjármál, rekstur og sölu í eina heildarmynd og vinnum með teyminu að því að bæta árangur.

Bóka samtal
Glerbygging í hlýju kvöldljósi

Hvenær nýtist AVISION?

Þegar afkoma eftir sviðum eða vörum er óljós, ákvarðanir byggja of mikið á tilfinningu eða vöxtur kallar á sterkari fjármálastjórn. Einnig þegar efla þarf hagdeild, fá fjármálastjóra að láni, undirbúa sölu fyrirtækis eða styrkja stjórn með rekstrar- og fjármálareynslu.

Hvað er frammistöðustjórnun?

Frammistöðustjórnun tengir stefnu við mælanleg markmið, ákvarðanir og reglulega eftirfylgni. Fjármál, rekstur og sala eru skoðuð saman svo stjórnendur geti greint hvað ræður árangri og hver ber ábyrgð á næstu skrefum.

Frammistöðustjórnun

Við tengjum fjármál, rekstur og tekjur í eina heildarmynd og greinum kostnað og arðsemi eftir sviðum, vörum eða viðskiptavinum. Rammi um lykilmælikvarða, mælaborð og stjórnendaskýrslur byggja á skýrum skilgreiningum og samræmdum gögnum. Regluleg árangursrýni tengir frávik við aðgerðir, ábyrgð og eftirfylgni. Ferlaumbætur og þjálfun teymisins hjálpa til við að festa vinnubrögðin í sessi.

Fjármálastjóri að láni

Fjármálastjórn fyrir fyrirtæki sem þurfa reynslu og reglulega aðkomu án þess að ráða í fullt starf. Meðal verkefna eru sjóðstreymisáætlanir, fjárhagsáætlanir og verðlagning, auk stjórnarskýrslna og undirbúnings fyrir fjármögnun eða sölu. Hlutverk, ábyrgð og viðvera eru skilgreind út frá þörfum fyrirtækisins.

Stjórnarseta og stuðningur við stjórnir

Reynsla stofnanda AVISION af fjármálum, alþjóðlegum rekstri og uppbyggingu fyrirtækja nýtist í stjórnarstörfum og ráðgjöf til eigenda og stjórna. Aðkoman getur falist í stjórnarsetu, rýni á áætlunum og rekstrarforsendum, stefnumótun og eftirfylgni með framkvæmd.

Hagdeild, kostnaðareftirlit og áætlanagerð

Við tökum að okkur uppbyggingu hagdeildar eða eflum þá sem fyrir er og samræmum fjárhagsáætlanir, rekstrarspár, kostnaðareftirlit og stjórnendaupplýsingar. Fjármál, rekstur og sala vinna út frá sömu forsendum. Greining og regluleg árangursrýni styðja við ákvarðanir um nýtingu fjármuna og forgangsröðun verkefna.

Vöxtur, fjármögnun og sala fyrirtækis

Við styrkjum fjárhagslega og rekstrarlega innviði fyrir öran vöxt og alþjóðlega sókn. Undirbúningur fyrir fjármögnun eða sölu felur í sér áreiðanlegar upplýsingar, skýrar áætlanir og greiningu á því hvað skapar verðmæti í fyrirtækinu.

Afmarkað verkefni: frammistöðustjórnun

Við byrjum á afmörkuðu rekstrarviðfangsefni, til dæmis óljósri arðsemi eða kostnaði sem vex hraðar en tekjur. Við greinum stöðuna og skilum arðsemislíkani, lykilmælikvörðum, stjórnendaskýrslum og aðgerðaáætlun eftir umfangi verkefnisins. Innleiðing, þjálfun og eftirfylgni eru hluti af skilgreindri aðkomu.

Hótel og gististaðir

Ráðgjöf fyrir hótel og gististaði tengir tekjustýringu, nýtingu og kostnað við afkomu og sjóðstreymi. Rekstrarráðgjöf í ferðaþjónustu byggir hér á fjármála- og greiningaraðferðum úr flugrekstri, aðlöguðum að gistirekstri.

Tekjustýring og nýting

Verðlagning, herbergjanýting og tekjur á hvert tiltækt herbergi (RevPAR). Greining á samsetningu bókunarleiða og þóknunum bókunarsíðna (OTA), ásamt spám sem taka mið af árstíðasveiflum.

Fjármálastjóri að láni fyrir hótel

Sjóðstreymi, fjárhagsáætlanir og arðsemi eftir gististað, markaði og bókunarleið. Kostnaður á hvert selt herbergi og skýrslugjöf til eigenda og lánveitenda.

Reynslan að baki

Sérþekking AVISION byggir á yfir 20 ára reynslu stofnandans, Sveins Inga Steinþórssonar, af fjármálum, flugrekstri og uppbyggingu fyrirtækja. Reynslan nær frá daglegri greiningu og hagdeildarvinnu til uppbyggingar innviða flugfélags frá stofnun til skráningar á Nasdaq.

  • PLAY – meðstofnandi. Byggði upp fjármála-, rekstrar- og gagnainnviði frá stofnun til skráningar á Nasdaq.
  • Air Atlanta Icelandic – 12 ár, þar af 10 sem forstöðumaður hagdeildar
  • WOW air – rúm þrjú ár við uppbyggingu gagna- og hagdeildarinnviða í örum vexti.
  • IATA – fyrrverandi meðlimur í stýrinefnd um kostnaðarstjórnun og samanburðargreiningu flugfélaga.
Um stofnanda AVISION

Markmið og afhending

Markmiðið er að stjórnendur hafi skýrari sýn á afkomu og þær aðgerðir sem geta bætt hana. Afhending er skilgreind í upphafi: greining, mælaborð, stjórnendaskýrslur, breyttir ferlar eða aðkoma að fjármálastjórn. Verkefnið getur verið afmarkað umbótaverkefni eða reglulegt samstarf. Við semjum um umfang, ábyrgð, viðveru, aðgang að gögnum og mælikvarða á árangur.

Spurningar og svör

Rekstrarárangur

Vinnið þið með fyrirtækjum utan flugs?

Já. Rekstrarþekking AVISION nýtist í ólíkum atvinnugreinum. Við sinnum fjármálastjórn og greinum arðsemi, nýtingu, veltufé og sjóðstreymi og aðlögum greininguna að viðskiptalíkani fyrirtækisins.

Getið þið komið inn sem fjármálastjóri að láni?

Já. Aðkoman getur meðal annars náð til áætlanagerðar, sjóðstreymis, stjórnendaupplýsinga og stuðnings við lykilákvarðanir. Hlutverk, ábyrgð og umfang eru skilgreind með stjórnendum.

Hvernig styðjið þið við öran vöxt og alþjóðlega sókn?

Við skoðum hvort fjárhagslegir og rekstrarlegir innviðir styðji við aukið umfang. Það getur falist í áætlanagerð, sjóðstreymisstýringu, kostnaðareftirliti, greiðsluferlum og upplýsingum sem stjórnendur þurfa til að stýra vextinum.

Næsta skref er samtal

Hvernig getum við aðstoðað þig?

Segðu okkur frá stöðunni og hvert þú vilt stefna. Við finnum leiðina saman.