Til baka á forsíðu

Hagnýting gervigreindar

Hraði gervigreindar. Agi fjármálanna.

Flest fyrirtæki eru byrjuð að nota gervigreind. Færri vita hvað hún skilar, hvað hún kostar og hvort hægt sé að treysta niðurstöðunum. Við hjálpum þér að ná stjórn á notkuninni og smíða lausnir sem skila árangri í fjármálum og rekstri.

Óháð ráðgjöf um gervigreind fyrir fjármál og rekstur.

Bóka samtal
Myndræn framsetning tengdra gagna

Hvernig við hjálpum

Við byrjum á samtali og einu afmörkuðu verkefni þar sem ávinningurinn er mælanlegur.

Sérsmíðaðar lausnir

Vinnuferlar og gagnatengingar sem draga úr handavinnu í fjármálum og rekstri.

Til dæmis í afstemmingum, skýrslugerð eða áætlanagerð. Lausnin er prófuð á gögnum fyrirtækisins áður en hún er tekin í notkun.

Úttekt á notkun

Hvernig er gervigreind notuð í dag, hvað kostar hún og hvar skilar hún mestu?

Afmörkuð úttekt með skýrum tillögum að næstu skrefum. Hún er ekki vottun eða formleg öryggisendurskoðun.

Reglur og þjálfun

Hvaða verkfæri má nota, með hvaða gögnum og hver ber ábyrgð, ásamt þjálfun út frá raunverulegum verkefnum.

Einfaldar reglur sem starfsfólk getur fylgt, og þjálfun í að nota verkfærin vel, fara yfir niðurstöður og þekkja takmarkanir þeirra.

Vinnubrögð

Gögnin þín
Ákveðum fyrir fram hvaða gögn má nota, hvar og hver hefur aðgang. Viðkvæmni gagna, skilmálar verkfæranna og aðgangsheimildir eru metin áður en vinna hefst.
Kostnaður í skefjum
Notkun er mæld og mörk sett, svo reikningurinn komi ekki á óvart. Við forðumst óþarfa keyrslur og sækjum aðeins ný gögn þar sem það á við.
Sannreynt
Niðurstöður eru bornar saman við gögnin áður en á þeim er byggt. Þegar villa finnst er bætt við athugun svo sama villan greinist næst.
Ábyrgð hjá fólki
Gervigreindin aðstoðar. Fólk yfirfer og samþykkir. Skýrt er hver ber ábyrgð á hverri lausn og hver samþykkir breytingar.

Algengar spurningar

Hvar er best að byrja með gervigreind?

Á einu afmörkuðu verkefni þar sem ávinningurinn er mælanlegur, til dæmis afstemmingum eða skýrslugerð. Þegar það skilar árangri er auðveldara að taka næsta skref.

Við notum nú þegar ChatGPT eða Copilot. Hvað svo?

Þá er gott að skoða hvað notkunin skilar, hvað hún kostar og hvaða reglur gilda. Oft liggja mestu tækifærin í að tengja verkfærin við gögn og ferla fyrirtækisins.

Hvaða verkfæri notið þið?

Meðal annars Claude, ChatGPT og Codex. Við veljum eftir verkefninu og þeim kerfum sem fyrirtækið notar fyrir.

Hvað kostar þetta?

Það fer eftir umfangi. Við byrjum á samtali, skilgreinum verkefnið og gerum tillögu áður en vinna hefst.

Næsta skref er samtal

Hvernig getum við aðstoðað þig?

Segðu okkur frá stöðunni og hvert þú vilt stefna. Við finnum leiðina saman.